Allt að gerast

Já það ríkir mikil gleði á heimilinu um þessar mundir :D bæði sett af ömmum og öfum eru að koma í heimsókn núna í mars ....jeiiii , við færum að sjálfsögðu flugfélögum Íslands þakkir fyrir gott (eðlilegt) verð á flugi til London

Ég (S) er um það bil að fara yfir um af stressi, núna eru þrjár viku eftir af kennslu hjá mér, skólinn klárast 20.mars. Á þessum tíma sem er eftir á ég að flytja 2 fyrirlestra, skrifa 3 ritgerðir og skila inn tillögu að mastersritgerðinni minni. Ég svitna bara við að skrifa þetta niður ;) ... eeen eins og með flest annað þá hlýtur þetta að reddast, það verður alla veganna mitt mottó næstu dagana

Rannveig á svo afmæli á fimmtudaginn, við ætlum að fara og kaupa Thomas köku til að taka með í leikskólann og gefa krökkunum....bannað að gagnrýna bökunarleysi....kanski ég baki Betty Crocker köku handa okkur hérna heima. Gríðarlega myndarleg ;)

S


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Slepptu bara kökunum og vertu dugleg að læra, það er ekki hægt að gera allt. Svo er tilvalið að senda ömmurnar og afana í bakarí þegar þau koma

Ingibjörg (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 15:59

2 identicon

Sammála þér Ingibjörg, það er nú minnsta málið að senda ömmur og afa í bakarí. Svo er nú hægt að láta Tobba baka, er það ekki ? Hlökkum mikið til að sjá ykkur og syngja fyrir afmælisbarnið. Þú ferð nú létt með þetta, snillingur eins og þú ert.

Sigrún og (Guðmundur) .

Sigrún Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 19:24

3 identicon

Til hamingju með afmælið frænka- 3 ára og voða voða stór. Pakki kemur með ömmu og afa, kveðja frá Unnir Birnu og Dagnýju Rós- kíkið inn á lheimasíðu leikskólanns okkar, við erum á Stubbakoti.

Inga frænka (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 09:44

4 identicon

Til hamingju með þriggja ára afmælið Rannveig Arna - hlakka til að sjá þig

Til hamingju með dótturina, Sesselía og Þorbjörn!

Árni - afi/pabbi/tengdó

Árni Þór Vésteinsson (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband