Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Been there, done that

Efnahagur Stóra Bretlands skelfur þessa stundina. Menn hafa ekki verið svona svartsýnir síðan í Sept 2008 ... ekki beinlínis langt síðan, en það var einmitt í þeim mánuði þegar fjárfestingabankinn Lehman Brothers féll, sem var upphafið að hruni Íslands svo eitt dæmi af fjölmörgum sé tekið.

Hlutabréf breskra banka hefur hrunið síðustu 2 daga, en einmitt um helgina gaf RBS (Royal Bank of Scotland) yfirlýsingu um GBP 8bn tap á 1. ársfjórðungi. Þetta er sirka ISK 1600milljarðar. Við í Lloyds sameinuðumst skoska bankanum HBOS um helgina, sem var (er) stór þátttakandi á húsnæðismakaðinum. En húsnæðismarkaðurinn hér í Bretlandi er, líkt og á Íslandi, á leiðinni til helvítis.

Svo er pundið búið að hrynja síðastliðna 6 mánuði. Fólk talar um að bankarnir séu "of stórir" til að ríkisstjórnin leyfi þeim að hrynju (sounds familiar?). Ennfremur kvarta bankamenn að "fjölmiðlamenn séu nú ekki beint réttlátir í umfjöllun sinni" (heard that before). Lausfé staða fjármálakerfisins er sögð sterk og, ólíkt Íslandi, þá geti ríkisstjórnin komið í veg fyrir hugsanlegt hrun (really?).

Ég verð að segja, að fyrir Íslendingi er þetta eins og eitt risastórt deja vu. Nákvæmlega sömu yfirlýsingarnar. Sömu áhættumælikvarðarnir farnir að pípa. Hvað er framundan?

T


Helgin komin loksins ...

Lífið gengur í fullkomri lotu þessa dagana: vinna-læra-elda-vaskaupp-sofa

Sesselía sá fólk fyrir utan skólann sinn um daginn, umvafið ísraelska fánanum, og kallandi á réttlátari sýn á aðgerðum þeirra: það er að segja, þeir vildu meiri pro-israel fréttir og umfjallanir.

Vinnan hjá mér hectic. Samruninn við Skotana verður í næstu viku, og gríðarleg undirbúningsvinna í gangi. Uppá framhaldið þá vona menn það besta, undirbúa sig fyrir versta.

Rannveigu líður mjög vel, loksins kominn í rútínu. Hún ætlar að hætta sofa með bleiju í nótt - við erum samt tilbúin með pissulak undir öllu. Tími til kominn, hún hætti með bleiju á daginn fyrir núna hálfu ári rúmlega ... :Þ

Að lokum hvet ég alla góða menn til að ganga til liðs við hið eina sanna lið Lundúnar. Hið samba bolta spilandi suð-austur Londoníska MILLWALL. Þeir eru að vísu í C-deildinni, en það tekur bara 30 mín að komast á völlinn, kosta 15-20 pund inn og þú færð alltaf miða.

T


seinheppin . is

Við fluttum inn í nýju íbúðina 7. nóv 08. Höfum sum sé búið hér í rétt rúma 2 mánuði.

Fyrst komu músahelvítin.

Svo bilaði boilerinn, og hitinn fór af í húsinu.

Núna fyrir um 2 klst hrundi veggurinn í garðinum ....

2009-Jan-003 

2009-Jan-005

2009-Jan-008

Allt er þegar þrennt er, er það ekki?

T


mmmm

stutt og laggott,

hitinn er kominn i lag i ibudinni okkar! jeijjjjj :D

nuna virka lika allir ofnar ooog tad er haegt ad fara i sturtu sem er ekki eins og dropateljari, ny og betri ibud sum se.

S


Ég er orðinn útlendingur

Verandi 3-manna íslenska fjölskylda í London yfir áramótin ákváðum við að skella okkur af afli niður í nostalgíuna/heimþrána og gláptum allt kvöldið á íslenskt efni stream-að í gegnum internetið. Byrjuðum á innlendu fréttaefni, svo erlent, og enduðum loks á áramótaskaupinu.

Allt þetta þótti mér hin mesta skemmtun. Að vísu fannst mér innlendi fréttahlutinn heldur of fullur af "I told you so" fréttum, það er að segja, fréttir af spámönnum og völvum sem áttu að hafa séð hrunið fyrir. You´re right. Samt pínku fyngið að sjá hina og þessa alþingismenn drulla yfir IMF og fleiri. Hehe.

Eitt sem ég skildi þó ekki. Hvað varð um allar íþróttafréttirnar? Unnum við ekki silfur á einhverju geimi hérna í sumar? Spánverjar unni EM í fótbolta. Missti ég af "íþrótta annál 2008"? Ég hélt alltaf að þetta væri partur af fréttayfirlitinu þeirra. Well.

En mest sjokkerandi við kvöldið fannst mér þó þegar við kona mín voru að horfa á skaupið (sem við vorum sammála um að væri með besta móti), þegar það komu trekk í trekk atriði og sketsar þar sem var verið að gera grín að einhverju fólki sem við höfum ekki hugmynd um, eða situasjónum sem við vissum ekki jack hvað væru. T.d. þessa dæmi þar sem Jón Gnarr er að tala eins og asni með höndunum sínum (apparently var það Páll Óskar), og einhver sjónvarpsþáttum sem sökkaði (við erum ekki enn búin að komast að því um hvað það snérist).

Fokk. Ég er orðinn útlendingur.

T


Kalt 2009

Það er svo sannarlega köld byrjun á árinu 2009 hjá okkur hér í London! Fjandans Boilerinn okkar sem sér um að hita vatnið og dæla því í ofnana ákvað að bila kl 19 á gamlárskvöld...við náðum þó að hafa það huggó það kvöldið en fórum að sofa í ullarsokkum og alklæðnaði

á nýársmorgun vöknuðum við í ííískaldri íbúð og klæddum okkur í enn meiri föt og kveiktum á kertum, reyndum auðvitað að gera þetta bara huggó, svona eins og okkur er lagið ;) Það verður að fylgja með að þar sem dóteraríið bilaði á gamlárskvöld var nátla enginn sem gat komið og lagað þetta hjá okkur...

Sem betur fer erum við svo heppin að Gauti og Vera nágrannar okkar leyfðu okkur að koma og hita kroppinn í heitu, fínu íbúðinni þeirra :) Núna erum við Rannveig bara að bíða eftir viðgerðarmanninum.

Fall er fararheill, vonum að árið 2009 verði betra en 2008! Gleðilegt ár :D


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband