Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
26.8.2008 | 10:30
B+
12.8.2008 | 10:11
Fjölskyldufréttir
Þetta er það helsta:
Sesselía er í 3. vikunni sinni (af þrem) í sumarskóla LSE. Hún hefur nú skilað af sér ritgerðinni og flytur fyrirlestur í dag. Á morgun verður svo síðasti tíminn fyrir prófið sem er á föstudaginn. Efni þessa námskeiðs er EU og policy making in EU. Ég er viss um að Sesselía kemur með afar uppfræðandi færslu um námskeiðið næstu helgi.
Rannveig er að ganga í gegnum sitt versta tímabil hingað til - the terrible twos. Við reynum eftir megni að halda niðri í henni látunum, frekjunni og stælunum, það gengur stundum ekki vel . Fyrir utan það líður henni vel og talar nú nær eingöngu ensku.
Ég sit nú í ritgerðarskrifum (eins og sést kannski á því hvað ég er duglegur við blogg skrif). Viðfangsefnið mitt er "Liquidity Risk" eða "Seljanleika áhætta". Í greininni minn reyni ég að setja upp stærðfræðilegan ramma fyrir áhættuna við lítinn seljanleika á markaði.
Ég fæ núna í vikunni formlegu tilboðin með öllum þeim detailum sem ég þarf til að taka rétta ákvörðun. Eins og stendur er líklegast að ég fari til svisslendinganna.
T
5.8.2008 | 18:39
Brúðkaupsafmæli, Rannveig og atvinna haustsins
Í dag fögnuðum við hjónin eins árs brúðkaupsafmæli okkar. Pappírs-hjón held ég að við köllumst núna - heldur ótraustvekjandi verð ég að segja. Hátíðarhöldin voru látlaus. Sesselía bakaði mér franska súkkulaðiköku - ég held í vonina að nú hafi verið skapað fordæmi sem Sesselía þurfi að toppa 5. ágúst, ár hvert!
Rannveig eldist hraðar en aðrir í fjölskyldunni. Núna er manni sagt að hypja sig fram á gang á meðan hún gerir nr 2.
Jobb mál haustsins eru farin að skýrast. Ég get sagt með vissu núna að ég verð ekki atvinnulaus . Það eru tveir aðilar sem koma til greina og næst á dagsskrá er að skoða þá betur. Þetta verður sennilegast komið í ljós í næstu viku.
T