Helgin komin loksins ...

Lífið gengur í fullkomri lotu þessa dagana: vinna-læra-elda-vaskaupp-sofa

Sesselía sá fólk fyrir utan skólann sinn um daginn, umvafið ísraelska fánanum, og kallandi á réttlátari sýn á aðgerðum þeirra: það er að segja, þeir vildu meiri pro-israel fréttir og umfjallanir.

Vinnan hjá mér hectic. Samruninn við Skotana verður í næstu viku, og gríðarleg undirbúningsvinna í gangi. Uppá framhaldið þá vona menn það besta, undirbúa sig fyrir versta.

Rannveigu líður mjög vel, loksins kominn í rútínu. Hún ætlar að hætta sofa með bleiju í nótt - við erum samt tilbúin með pissulak undir öllu. Tími til kominn, hún hætti með bleiju á daginn fyrir núna hálfu ári rúmlega ... :Þ

Að lokum hvet ég alla góða menn til að ganga til liðs við hið eina sanna lið Lundúnar. Hið samba bolta spilandi suð-austur Londoníska MILLWALL. Þeir eru að vísu í C-deildinni, en það tekur bara 30 mín að komast á völlinn, kosta 15-20 pund inn og þú færð alltaf miða.

T


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Unnur Arna Sigurðardóttir

HÆ snúllur, vona að þið hafið það sem allra best og að allt eigi eftir að ganga vel í samrunanum.

Kær kv.

Unnur Arna Sigurðardóttir, 18.1.2009 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband