Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Wellmeadow Road 68A

Við erum núna búin að negla það. Við fáum afhenta íbúðina á Wellmeadow Road þann 6. nóv og flytjum úr Catalpa Court 11. nóv. Nýja íbúðin er mjög fín, nýuppgert klósett og eldhús með risastórum garði, en heldur minni en Catalpa Court. Gestirnir okkar verða því bara að sitja þröngt.

Við spurðum Rannveigu hvort við ættum að fá okkur kettling þegar við flytjum inní nýju íbúðina, þar sem gæludýrahald er ekki bannað. Hún hafnaði því, en bað þess í stað um að fá bleikan voffa.

T

Bætt við seinna: Hér má sjá Wellmeadow á korti, miðað við Catalpa.


Starfsleit 2

Bætti einu ás við í dag og tvisturinn minn varð bónus-tvistur, þannig að núna hef ég 3 ása, 1 bónus-tvist.

Bónus forskeytið kemur til vegna þess að viðtalið hjá Lloyds gekk vel og ég er að öllum líkindum á leið í 2nd interview.

T

PS. Ingibjörg, má ég ekki birta kveðskap Finnboga hérna?


Endalaust brauð

Eins og flest börn, þá vill Rannveig að maður skeri skorpuna frá mjúka brauðinu, þegar búið að er að rista það og smyrja.

En ólíkt venjulegum krökkum, þá er þetta gert fyrir hana, svo hún geti borðað skorpuna í friði frá bölvaða brauðinu, en ekki the-other-way-around.

 brauð

T


Starfsleit 1

Undanfarna daga hef ég varla haft undan því að svara spurningum um hvernig gangi, og til að gera mér lífið eilítið léttara þá vil ég skýra hér ferlið lítillega.

Starfsreyndir og merkilegir menn eru headhuntaðir, en fyrir svona unglinga eins og mig, þá gengur ferlið frá því að vera atvinnulaus yfir í að vera með atvinnu svona:

1. Senda út CV og umsóknir til ráðningastofa (agencies) og fá viðtal hjá þeim. Þar taka þeir prófílínn manns (menntun, starfsreynsla etc) og sjá svo um að auglýsa mann til banka og fyrirtækja.

2. Ráðningastofan setur upp viðtal milli mín og banka (eða fyrirtækis). Venjulega reddar stofan ekki nema 2 viðtölum á mann, því ef manni hefur ekki verið boðinn samningur eftir 2 viðtöl er maður bad-fish.

3. Bankinn (eða fyrirtækið) býður manni samning.

Ég er kominn með 3 ása, þar af var 1 að upgrade-ast í tvist í dag. Viðtal við Lloyds TBS á morgun.

T


Greed is good

Ég sá þessa ábendingu á mbl.is og ég bara vera að áframsenda hana hingað, here you go.

Wall Street er klassísk mynd frá 1987 og fjallar um hina ógeðfelldu hlið fjármálaheimsins. Leikur Michael Doglas í myndinni er frábær (hann hlaut óskarinn fyrir frammistöðuna). Takið hana á leigu núna, sennilega ekki hægt að finna betri tíma en núna til að rifja upp kynnin :)

Þeir eru að tala um að gera framhaldsmynd. Bíð spenntur.

T


FIFA 09

Gjörbreyttur leikur miðað við 08 eða 07. Helsta breytingin er að boltinn er núna orðin sjálfstæð eining í leiknum. Hann skoppar meira og staðsetning hans tilviljanakenndari, en í gömlu leikjunum þá einhvern veginn "festist" hann við leikmanninn.

Til allra hlutaðeigandi: kaupið hann núna!

T


Við ætlum að láta reyna á þetta

Samkvæmt því sem ég heyri frá vinum og fjölskyldu á Íslandi, þá er atvinnulífið heima (og þá sérstaklega fjármálageirinn) algerlega kominn í djúpfrystinn. Það er ekkert að gerast. Enginn að ráða. Mér er því ljóst að það bíður mín ekkert heima nema atvinnuleysisbæturnar.

Og jafnvel þó maður fengi vinnu þá fengi maður borgað fyrir hana í íslenskum krónum sem víst afskaplega verðlitlar. Húsnæðismarkaðurinn er í lok og lás, og að lokum er verðlag sennilega orðið svona 50% hærra en þegar við fluttum frá Íslandi.

Atvinnumarkaðurinn hér í London er töff en ekki ómögulegur. Það eru möguleikar á vinnu hérna og við ætlum, eins og fyrr sagði, að kasta teningnum. Testa þetta. Ég þarf heldur ekkert að einskorða mig við the financial sector. Í þessu árferði get ég hreinlega ekki leyft mér þann munað.

Með hörðum samdrætti í eyðslusemi okkar :) þá ætti lausafé staðan okkar að gefa okkur 1-2 mánuði hérna úti. Hluti af aðhaldinu er að flytja í minni og ódýrari íbúð - sem við gerum í lok mánaðarins. Vonandi verður hægt að finna vinnu á þeim tíma. Ég er að fara í viðtal hjá Loyds í þessari viku. Kannski komi eitthvað uppúr því.

T


The Second World Depression

Ég held að þegar frá líður, eftir nokkur ár jafnvel, þegar kreppan er farinn og brjálæðislega íslenska bjartsýnin (og lántökurnar) aftur kominn á sinn stað, þá átti fólk sig á því að þetta tótal krass var óumflýjanlegt.

Ég á við, það er erfitt að sjá fyrir sér 2008 líða hjá með öllum sínum ósköpum, án þess að bankarnir færu í klessu. Kannski hefði verið hægt að redda þessu 2005/6 með einhverjum stórkostlegum lagasetningu. Eitthvað á borð við aðskilnaði viðskiptabanka- og fjárfestingabankastarfssemi, eða takmörk á efnahagsreikningi banka. Miklar áhættuhömlur og krafa um 30-40% lágmarks eignahlutfall (núna er það 8%).

En það hefðu allir mótmælt því af grimmd á þessum tíma. Kallað þetta óþarfa forsjáhyggju og heigulskap. Sagt að við værum að kasta ótrúlegum hagvaxta möguleikum frá okkur. Sem við hefðum vissulega verið að gera. Nei, íslenska bjartsýnin hefði aldrei leyft slíkar takmarkanir.

Íslenska bjartsýnin var fyrirfram dæmt til að hrapa í 2008 krassinu. The Second World Depression.

Sem betur fer koma þær bara á sirka 80 ára fresti :)

T


Greiðslustöðvun

Þetta gekk ekki í þetta sinn.

Kaupthing Singer & Friedlander er alveg óver. Við sem störfuðum þarna, yfir 600 manns, erum nú atvinnulaus. Þessum tíðindum var að sjálfsögðu tekið að enskum sið, farið á pöbbinn (þeir bera það fram púúbb).

Þetta breytir að sjálfsögðu algjörlega okkar plönum. Við erum að ákveða hvað við gerum. Póstum niðustöður á næstu dögum.

T


Staðan hér í London

Ég ætla nú ekki að breyta þessari síðu í einhvert grenjuathvarf fyrir þunglynda, en mér þykir ég verða segja ykkur frá því að Landsbankinn hérna í London er í algjöru lausu lofti. Öll operation hér í London hefur verið stöðvuð (af FME, Fjármála eftirliti Íslands), og starfsfólk hefur ekki hugmynd hver sé stefnan. Margir vinir okkar Sesselíu vinna þarna.

Miðað við yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar finnst mér líklegast að þeir selja allar eignir til að minnka efnahagsreikning LÍ (það þýðir basically, minnka LÍ), og leggi niður starfssemina. Mér þykir það afar miður.

Kaupþing Singer & Friedlander, eins og aðrar fjármálastofnanir í London, rær nú lífróður. Stefnan er skýr. Eins og fram kemur í fjölmiðlum, þeir verða að minnka, en lifa af fyrir vikið. Vonandi.

Nú vantar okkur smá dass af heppni. Koma svo! Áfram!

T


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband