Starfsleit 3

Gengur ágætlega. Ég fékk þær fréttir áðan frá einni ráðningastofunni að ég er í lokaúrtakinu fyrir Lloyds og þeir taka ákvörðun á morgun eða hinn. Fyrir helgi sem sagt. Úúú komm on!

Fimm aðrar umsóknir eru out in the open. Ég hef ekki enn verið boðaður í nein viðtöl í þeim en það eru ennþá bara 2 vikur liðnar frá því ég byrjaði effektíft að leita að vinnu. Svo það er algjör óþarfi að stressa sig eitthvað.

Flytjum eftir tæpar 2 vikur á Wellmeadow Road.

Á milli þess sem ég sæki um vinnur og sinni Rannveigu hitti ég konuna mína milli þess sem hún kastar af sér skóladótinu og fleygir sér í djammgallann og heldur niðurí Soho :) Nei ok, hún er alltaf að læra. Fæn.

T


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tobbi minn, enn og aftur held ég í tummann fyrir þig og ykkur elskurnar mínar. Ég bið alla vætti landsins að standa með ykkur núna. Við gerum það alla vega við öll.

Ég veit að skólastelpan þín stendur sig vel...   ég bara veit það.

Bestu kveðjur

mamma

Sigrún Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband